Almennt orðleysi veltur af tungu Skallans.
27.03.2007 14:18:00 / Skallinn

Hvernig ertu í Enskunni?? :)

  Það er sko munur að vera sleipur í tungumálunum0 eða slippery in the
tongue-mugs



1. The raisin at the end of the hot-dog = Rúsínan í pylsuendanum.

2. I measure one-pulled with it = Ég mæli eindregið með því.

3. Now there won't do any mitten-takes = Nú duga engin vettlingatök.

4. I come completely from mountains = Ég kem alveg af fjöllum.

5. Thank you for the warm words into my garden = Þakka þér fyrir hlý orð í minn garð.

6. Everything goes on the back-legs = Það gengur allt á afturfótunum.

7. He's comepletely out driving = Hann er alveg úti að aka.

8. It lies in the eyes upstairs = Það liggur í augum uppi.

9. She gave me under the leg = Hún gaf mér undir fótinn.

10. He stood on the duck = Hann stóð á öndinni.

11. I teach in breast of him = Ég kenni í brjósti um hann.

12. On with the butter!!! = Áfram með smjörið!

13. In a green bang = Í grænum hvelli

14. I springteach him = Ég vorkenni honum

15. Front seat advise Sir = Forsætisráðherra

16. Stomp steel into them = Stappa stálinu í þá

17. Hot spring river this book = Hver á þessa bók?

18. Nobody becomes an unbeaten bishop = Enginn verður óbarinn biskup

19. I took him to the bakery = Ég tók hann í bakaríð

20. I will find you on a beach = Ég mun finna þig í fjöru

21.To put someone before a cats nose = Að koma einhverjum fyrir kattarnef

22. I only pay with an angry sheep = Ég borga bara með reiðufé

23. I'll show him where David bought the ale = Ég skal sýna honum hvar
Davíð keypti ölið.

24. I will not sell it more expensive than I bought it = Sel það ekki
dýrara en ég keypti það

25. He doesn't walk whole to the forrest = hann gengur ekki heill til
skógar

» 2 hafa sagt sína skoðun

25.03.2007 03:28:38 / Skallinn

Fólk sem fæddist fyrir 1990...alger snilld :D

Fólk sem að fæddist fyrir 1990 ætti að vera dáið!!! (eða vorum við bara heppin??Já, samkvæmt löggjöfum og skriffinnum nútímans ættu þau okkar sem voru börn á 5., 6., 7. og 8. áratug síðustu aldar ekki að hafa lifað af.

· HVERS VEGNA VAR ÞESSI NIÐURSTAÐA OKKAR SVONA?

·  Jú, barnarúmin okkar voru máluð með blýmálningu.

· Það var engin barnalæsing á lyfjaglösum, hurðum eða skápum og þegar við hjóluðum notaði ekkert okkar hjálm.Sem börn sátum við í bílum án öryggisbelta og/eða púða. Að fá far á vörubílspalli var sérlega gaman.

· Við borðuðum brauð með smjöri, drukkum gos með sykri, en fæst okkar lentu í offituvandamálum, því við vorum alltaf úti að leika.

· Við deildum gjarnan gosflösku með öðrum og allir drukku úr sömu flöskunni án þess að nokkur létist.

· Við vörðum löngum stundum í að byggja kassabíl úr dóti og drasli og þutum á honum niður brekkuna, bara til að uppgötva að við höfðum gleymt bremsunum. Eftir nokkrar veltur lærðum við að leysa vandamálið.

· Við fórum að heiman snemma á morgnanna til að leika okkur allan daginn og komum aftur heim í kvöldmat Enginn hafði möguleika á því að ná í okkur yfir daginn.

· Engir farsímar. Ha, engir farsímar? Óhugsandi! Sumir áttu litlar talstöðvar sem var flott að eiga!

·  Við áttum ekki Playstation, Nintento 64, X-box, enga tölvuleiki, ekki fjölmargar rásir í sjónvarpinu, ekki video, ekki gervihnattasjónvarp, ekki heimabíó, farsíma, heimilistölvu eða spjallrásir á Internetinu.

· Við eignuðumst vini! Við fórum bara út og fundum þá.

·  Við duttum í skurði, skárum okkur, fótbrotnuðum, brutum tennur, en enginn var kærður fyrir þessi óhöpp. Þetta voru jú óhöpp. Það var ekki hægt að kenna neinum um? nema okkur sjálfum. Manstu eftir óhappi? Við slógumst, urðum blá og marin og lærðum að komast yfir það.

· Við lékum okkur í nýbyggingum, fundum upp leiki með naglaspýtum og drasli og átum Maðka og reyktum njóla. Þrátt fyrir aðvaranir voru það ekki mörg augu sem duttu út og ekki lifðu maðkarnir inni í okkur til eilífðar og margir gáfust upp á fyrsta njólanum!

· Við hjóluðum eða gengum hvert til annars, bönkuðum á dyrnar,gengum inn og létum eins og heima hjá okkur.

· Við lékum okkur úti eftir kvöldmat, fórum í fallin spýta,eina krónu,eltingaleik eða feluleik, svo ekki sé minnst á löggu og bófa.Svo þegar aldurinn sagði til sín fórum við í kossaleik og eignuðumst kærustu/kærasta.

· Það þurfti engar félagsmiðstöðvar eða neina til að stjórna okkur – Við stjórnuðum okkur sjálf.

· Sumir nemendur voru ekki eins glúrnir og aðrir, þeir lentu í tossabekk. Hræðilegt.... En þeir lifðu af.

· Engin vissi hvað Rídalín var og engin bruddi pillur sem barn.

· Við fórum í sunnudagsskóla eða sóttum KFUM og K, sungum og vorum í skátunum og lærðum hnúta og kurteisi.

· Ef það sprakk á hjólinu lagfærðum við það í sameiningu og alveg sjálf.

· Morgunkornið okkar var m.a. TRIX morgunkorn, og við lifðum af litarefnið í því...

· OG AFLEIÐINGIN ER ÞESSI!

· Síðustu 50 ár hafa verið sprengja nýsköpunar og nýrra hugmynda. Við áttum frelsi, sigra ósigra og ábyrgð og við lærðum að takast á við það allt saman. Við sem ólumst upp áður en löggjafi og stjórnvöld settu lög og reglur um líf okkar sem þeir segja að sé "okkur sjálfum fyrir bestu"?.

· Þessi kynslóð hefur alið af sér fólk sem er tilbúið að taka áhættu, góð að leysa vandamál og bestu fjárfestar nokkru sinni.Við áttum bara gott líf er það ekki?


» 9 hafa sagt sína skoðun


Síðast inni
Ég var síðast inni þann 23 mars
Klukkan